Einn sá besti gæti hafa lokið leik
Bertel Bolt / Mors-Thy

Danski miðillinn Kunmedierne.dk greinir frá því að lið Mors-Thy Håndbold óttist að þeirra besti leikmaður á tímabilinu Victor Norlyk sé búinn að leika sinn síðasta leik fyrir félagið á tímabilinu.

Victor Norlyk hefur farið á kostum í liði Mors-Thy á tímabilinu en hann gengur í raðir Nantes í sumar.

Norlyk meiddist í leik á sunnudag gegn Bjerringbro-Silkeborg, sem Mors-Thy vann 30-34. Hann náði að skora tvö mörk áður en hann fór af velli. Hann fékk hinsvegar þungt höfuðhögg í leiknum og kom ekkert meira við sögu eftir það. Óttast er að hann hafi fengið heilahristing sem gæti valdið því að hann leiki ekki meira með á tímabilinu.

Liðið er í harðri baráttu um sæti í undanúrslitum og er í öðru sæti í sínu riðli þegar þrjár umferðir eru eftir. Mors-Thy er með fimm stig en Holstebro, lið Arnórs Atlasonar er með þrjú stig. Fjarvera Norlyks gæti því haft mikil áhrif á liðið í lokaleikjum tímabilsins.

Norlyk hefur skorað 240 mörk í dönsku úrvalsdeildinni og er næst markahæstur á eftir Frederik Bjerre. Hann var einnig valinn í danska landsliðið fyrr á þessu ári. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top