Reynir Þór markahæstur í tapi Melsungen
(Kristinn Steinn Traustason)

Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Flensburg tóku á móti Melsungen á heimavelli. Heimamenn byrjuðu leikinn betur og voru yfir í fyrri hálfleik en á 25.mínútu leiksins fékk Danis Krisopans leikmaður Melsungen að líta rauða spjaldið. Staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja var 19-15, heimamönnum í vil.

Þeir héldu svo áfram að bæta í forskotið í síðari hálfleik og unnu að lokum öruggan 10 marka sigur og endurheimtu 2.sætið í deildinni af Fusche Berlin. Melsugen eru í 7.sæti deildinnar eftir leiki dagsins. Reynir Þór Stefánsson var markahæstur í liði Melsungen í kvöld með 7 mörk en markahæsti maður vallarins kom úr röðum heimamanna og var Daninn Emil Jakobsen með 9 mörk.

Síðari leikur kvöldins var viðureign Minden og Eisenach. Gestirnir frá Eisenach voru stekari í leiknum í kvöld og leiddu 13-16 í hálfleik og unnu að lokum fimm marka sigur, 29-34. Vincent Buchner var markahæstur í liði Eisenach í kvöld með 8 mörk en hjá Minden var það Morten Hempel Jensen sem skoraði 6 mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top