Alpla Hard í bikarúrslitum
Harald Dostal / APA-PictureDesk / AFP

Hannes Jón Jónsson og drengirnir hans í Alpla Hard eru komnir í bikarúrslit í Austurríki eftir 32-37 sigur á Tirol í undanúrslitum í dag.

Tumi Steinn Rúnarsson var markahæstur í liði Alpla Hard í dag með 7 mörk. Tryggvi Garðar Jónsson leikur einnig með Alpla Hard en hann skoraði ekki mark í leiknum í dag en stóð varnarleikinn vel í sigri þeirra.

Alpla Hard mæta Krems í úrslitaleik á morgun, laugardag, en þeir unnu 14 marka sigur á Hollabrunn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top