Blær náði í óvænt stig gegn Kiel
Tom Weller / AFP

Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Blær Hinriksson og samherjar hans í Leipzig fóru í heimsókn til Kiel. Það var mikið jafnræði með liðunum allan leikinn en heimamenn í Kiel leiddu, 14-13 í hálfleik.

Leikmenn Leipzig hleyptu heimamönnum aldrei langt fram úr sér og náðu að jafna metin þegar 4 sekúndur voru eftir í 28-28 og það urðu lokatölur leiksins. Það er óhætt að segja að þetta séu virkilega óvænt úrslit og mikilvægt stig fyrir Blæ og hans menn sem eru í harðri botnbaráttu í deildinni. Blær skoraði 1 mark í leiknum en Leipzig eru áfram í neðsta sæti deildinnar eftir þetta stig og eru einu stigi frá öruggu sæti í deildinni.

Í síðari leik dagsins tóku Erlangen á móti Hamburg. Bæði Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson voru fjarverandi í liði Erlangen í dag en Einar Þorsteinn Ólafsson var á sínum stað í liði Hamburg og gaf 1 stoðsendingu í 23-31 sigri liðsins í dag. Sigurinn var aldrei í hættu en Hamburg leiddu með sex mörkum í hálfleik, 10-16.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top