Sunna Jónsdóttir leikmaður Fram hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna og hefur þar með leikið sinn síðasta leik á ferlinum. Þetta staðfesti hún í samtali við Handkastið. Sunna gekk í raðir Fram fyrir tímabilið og lék með liðinu í Olís-deild kvenna en hennar síðasti leikur var í síðustu viku er Fram féll úr leik í undanúrslitum Íslandsmótsins gegn Val. Þar með sneri hún aftur til Fram eftir tólf ár. Tólf ár eru síðan Sunna lék síðast með Fram. Í millitíðinni hefur hún leikið í Noregi, Svíþjóð og síðast í sjö ár með ÍBV hvar hún var kjölfesta Eyjaliðsins. ,,Skórnir komnir lengst upp og innst inn í hillu upp á háalofti," sagði Sunna í samtali við Handkastið er hún var spurð að því hvort skórnir væru komnir upp á hillu. Sunna er ein reynslumesta handknattleikskona landsins en hún á að baki 99 landsleiki og þátttöku í stórmótum með landsliðinu auk þess að vera fyrirliði landsliðsins um árabil. Sunna lék með ÍBV á árunum 2018-2025 en hún var fyrirliði íslenska landsliðsins á HM 2023 og lék um tíma sem atvinnumaður erlendis.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.