
Landsliðsmennirnir, Elliði Snær Viðarsson og Haukur Þrastarson eru báðir í liði 29. umferðarinnar í þýsku Bundesligunni eftir sína frammistöðu. Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum í tveggja marka tapi Gummersbach á útivelli gegn þýsku meisturunum í Fuchse Berlín. Þá skoraði Haukur Þrastarson ellefu mörk og gaf átta stoðsendingar í tveggja marka tapi Rhein Neckar Löwen gegn Göppingen á útivelli. Hér að neðan má sjá lið 29.umferðar í þýsku Bundesligunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.