Áfall fyrir Pick Szeged – Mikið álag á Janusi Daða
Dominika Zarzycka / NurPhoto via AFP

Átta liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu hefjast í dag með tveimur leikjum. Íslendingaslagur fer fram í Ungverjalandi klukkan 16:45 þegar Pick Szeged tekur á móti Magdeburg. Á sama tíma mætast síðan Íslendingalið Sporting og Álaborg í Portúgal.

Vandræðin halda áfram að hrannast upp hjá Pick Szeged en ljóst er að leikstjórnandinn, Lazar Kukić leikur ekki meira með liðinu á tímabilinu.

Lazar Kukic meiddist í bikarúrslitaleik gegn Veszprém á dögunum en seint í fyrri hálfleik lenti hann í alvarlegum axlarmeiðslum. Kukic gekk í raðir Pick Szeged fyrir tímabilið og hefur spilað vel með liðinu í vetur. Er þetta annar leikstjórnandinn sem dettur út hjá liðinu en samningi Jim Gottfridsson var rift á dögunum.

Fjarvera Kukić skilur eftir stórt skarð í sóknarleik Szeged, sérstaklega miðað við núverandi leikmannahóp. Eftir að sænska stórstjarnan Jim Gottfridsson yfirgaf félagið og hvílir ábyrgðin nú nánast alfarið á herðum íslenska landsliðsmannsins Janusar Daða Smárasonar.

Það verður því mikið álag á Janusi Daða í leiknum í dag og það sem eftir lifir tímabils hjá Pick Szeged sem bíður erfitt verkefni gegn Magdeburg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top