
Tveir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í gærkvöldi þegar 30.umferðin fór af stað. Botnlið Leipzig fyrir umferðina vann gríðarlega mikilvægan sigur á heimavelli með einu marki 30-29 gegn Erlangen en hvorki Viggó Kristjánsson né Andri Már Rúnarsson voru í leikmannahópi Erlangen í gær. Báðir eru þeir að glíma við smávægileg meiðsli. Blær Hinriksson skoraði tvö mörk fyrir Leipzig en Dean Bombac var markahæstur með sjö mörk. Marek Nissen var markahæstur í liði Erlangen með 11 mörk. Um var að ræða fyrsta sigur Leipzig í þýsku deildinni frá því 10. febrúar þegar liðið hafði betur gegn Hamburg 35-33 á útivelli. Með sigrinum í gær fór liðið uppfyrir Minden og er nú í 17.sæti deildarinnar með 13 stig, en Minden er nú á botni deildarinnar með 12 stig. Í hinum leik gærkvöldsins gerðu Íslendingaliðin Gummersbach og Göppingen jafntefli 29-29 en Göppingen höfðu mikla yfirburði í fyrri hálfleik og voru 12-19 yfir í hálfleik. Gummersbach byrjuðu hinsvegar seinni hálfleikinn af krafti og náðu 6-1 kafla í upphafi seinni hálfleiks. Lærisveinar Guðjóns Vals voru þó undir allan seinni hálfleikinn og voru tveimur mörkum undir þegar innan við mínúta lifði leiks. Á einhvern ótrúlegan hátt náðu þeir hinsvegar að skora tvö síðustu mörk leiksins og lokatölur 29-29. Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Gummersbach. Ýmir Örn Gíslason lék ekki með Göppingen í leiknum vegna meiðsla. Miro Schluroff skoraði níu mörk og Milos Vujovic átta fyrir Gummersbach. Erik Persson var markahæstur hjá Göppingen með sex mörk. Fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu hjá þessum fjórum félögum en Gummersbach hefur nú tapað þremur stigum í síðustu tveimur leikjum í harðri baráttu sinni um Meistaradeildarsæti á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.