Úrslitakeppnin í Austurríki hófst í dag og voru drengirnir hans Hannes Jóns Jónssonar í Alpla Hard á ferðinni. Þeir mættu Fivers í fyrsta leik liðanna í einvígi þeirra í 8 liða úrslitum. Alpla Hard endaði í öðru sæti deildarkeppninnar og Fivers voru í því sjöunda. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og leiddu heimamenn með einu marki þegar skammt var til leiksloka. Þeir köstuðu leiknum hins vegar frá sér undir restina og Fivers skoruðu síðustu 2 mörk leiksins og unnu 32-33. Tumi Steinn Rúnarsson og Tryggvi Garðar Jónsson voru á sínum stað í leikmannahóp Alpla Hard og skoraði Tumi tvö mörk. Tryggvi Garðar skoraði ekkert mark í leiknum en stóð vaktina í vörninni og var vikið tvívegis af velli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.