Kadetten Schaffhausen eru komnir í úrslit um svissneska meistaratitilinn en liðið vann Bern Muri í þriðja leik liðanna í undanúrslitaeinvíginu, 31-30, í gær. Óðinn Þór Ríkharðsson var frábær í leiknum og skoraði 11 mörk og var markahæstur á vellinum. Kadetten vann einvígið 3-0 og mun annaðhvort mæta Kriens-Luzern eða Pfadi Winterthur í úrslitaeinvíginu en staðan í því einvígi er 2-0 fyrir Kriens og geta þeir tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu með sigri síðar í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.