

Sveinn Jóhannsson skoraði þrjú mörk í tíu marka tapi Chambéry á útivelli gegn Nantes í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Sveinn skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum en Chambéry er í 5.sæti deildarinnar með 32 stig þegar fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Nantes er í 2.sæti deildarinnar með 49 stig, tveimur stigum á eftir Paris Saint Germain og eltir þá eins og skugginn. Þetta er fyrsta tap Chambéry í síðustu sjö leikjum liðsins en liðið hafði unnið sex leiki í röð í frönsku úrvalsdeildinni. Sigurganga Nantes hélt hinsvegar áfram en þetta var ellefti sigur leikur liðsins í röð í deildinni en liðið tapaði síðast stigum 18.desember þegar liðið gerði jafntefli gegn toppliðinu, Paris Saint Germain.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.