Haukur einn af bestu leikmönnum apríl mánaðar
Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP

Selfyssingurinn, Haukur Þrastarson landsliðsmaður Íslands og leikmaður Rhein-Neckar Löwen, hefur verið tilnefndur sem einn af sjö bestu leikmönnum aprílmánaðar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Haukur verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í Kaíró í Egyptalandi í næstu viku þegar íslenska landsliðið leikur tvo vináttulandsleiki gegn Egyptum.

Haukur sem gekk í raðir Rhein Neckar Löwen síðasta sumar eftir eins árs dvöl í Rúmeníu hjá Dinamo Bucuresti, hefur farið afar vel af stað með liðinu á sínu fyrsta tímabili í einni sterkustu deild heims og átti sérstaklega góðan mánuð í apríl.

Í umfjöllun á heimasíðu deildarinnar var frammistaða hans sérstaklega lofuð og bent á að fáir leikmenn hefðu verið jafn áhrifamiklir í sóknarleiknum undanfarið. Þar kom einnig fram að þrátt fyrir að vera nýliði í deildinni hafi hann frá upphafi verið lykilmaður í sóknarleik liðsins.

Í þremur deildarleikjum í mánuðinum skoraði hann alls 26 mörk og gaf 27 stoðsendingar. Hann er stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar. Þá hefur hann verið iðinn við markaskorun og hefur auk þess fimm sinnum náð að skora tíu mörk eða fleiri í einum leik á tímabilinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top