Opel verður aðal styrktaraðili bestu deildar í heimi
Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP

Opel hefur gert samstarfssamning við þýsku úrvalsdeildina og verður frá sumrinu nafnaaðili þýsku Bundesligunnar sem í dag heitir DAIKIN. Deildin mun framvegis bera heitið: Opel Handball-Bundesliga.

Samningurinn tekur gildi 1. júlí 2026 og er til þriggja ára. Auk þess að verða aðalstyrktaraðili deildarinnar mun Opel einnig styðja við bæði karla- og kvennalandslið Þýskalands.

Samkvæmt fréttum frá franska miðlinum HandNews verður merki Opel sýnilegt á keppnisbúningum allra liða í efstu deild sem og á landsliðsbúningum Þjóðverja. Þá verður nýtt vörumerki kynnt undir heitinu „Opel HBL“.

Samstarfið er talið eitt stærsta auglýsinga- og styrktarsamstarf sem gert hefur verið í þýskum handbolta á síðustu árum. Markmiðið er meðal annars að styrkja stöðu handboltans meðal yngri kynslóða með aukinni stafrænnri markaðssetningu og sýnileika í íþróttahöllum víðs vegar um Þýskaland.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top