Færeyingar á HM í fyrsta sinn
Cornelius Poppe / NTB / AFP

Færeyjar og Spánverjar tryggðu sér sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári eftir sigra í seinni leikjum sínum í umspilinu fyrir heimsmeistaramótið.

Spánverjar unnu sjö marka sigur á Ísrael en einvígið fór fram í Buenos Aires í Argentínu vegna stríðsátakanna í Ísrael. Spánverjar unnu einnig fyrri leikinn og unnu einvígið samanlagt 68-56.

Það var öllu meiri spenna í Þórshöfn í kvöld þegar Færeyjar tóku á móti Bosníu eftir að hafa haft betur í fyrri leik liðanna í Bosníu 22-24. Færeyjar hafa aldrei leikið á heimsmeistaramótinu áður og það var því mikið undir í Þjóðarhöllinni við Tjarnir.

Bosnía var tveimur mörkum yfir í hálfleik 15-17. Færeyingar voru hinsvegar töluvert sterkari aðilinn í seinni hálfleik og skoruðu þrjú fyrstu mörk seinni hálfleiks og breyttu stöðunni í 18-17. Heimamenn héldu áfram að hamra járnið meðan það var heitt og voru skyndilega komnir fjórum mörkum yfir í stöðunni 26-22.

Með frábærum stuðningi rúmlega 3000 stuðningsmanna sigldu heimamenn þessu í höfn og unnu að lokum fimm marka sigur 33-28 og sæti á HM í höfn. Hákun West af Teigum var markahæstur Færeyinga með ellefu mörk og Óli Mittún skoraði sex.

Bjarni í Selvindi leikmaður Vals skoraði eitt mark í leiknum en Allan Norðberg komst ekki á blað. Það sem gerir sigur Færeyinga enn stærri er að þeirra stærsta nafn og besti leikmaður, Elias Ellefsen á Skitagötu, leikmaður Kiel glímir við meiðsli og var því ekki með liðinu í leikjunum tveimur.

Handkastið óskar Færeyingum til hamingju með sætið á HM!

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top