Danski handboltasérfræðingurinn Claus Møller Jakobsen hefur farið hörðum orðum um landsliðsþjálfara Þjóðverja, Alfreð Gíslason, eftir tvö töp Þjóðverja gegn Dönum í vináttulandsleikjum um helgina. Þjóðverjar töpuðu síðari leiknum í Köln, 29:31, gegn dönsku liði sem var án nokkurra lykilmanna, þar á meðal Mathias Gidsel og Magnus Saugstrup. Að mati Jakobsens var frammistaða og hugarfar þýska liðsins langt undir væntingum. Í viðtali við TV2 Sport sagðist Jakobsen vera „mjög áhyggjufullur“ yfir þróun liðsins undir stjórn Alferðs. Hann gagnrýndi sérstaklega að liðið hefði ekki sýnt neinar framfarir frá Evrópumótinu í janúar og sagði að þýska landsliðið spilaði of einstaklingsbundið. Jakobsen nefndi Juri Knorr sérstaklega og sagði að leikur Þjóðverja snerist of mikið um hann. Þá taldi hann að Gíslason hefði ekki náð að þróa unga og hæfileikaríka leikmenn liðsins sem skyldi. Hann gekk jafnvel svo langt að segja að þýska handknattleikssambandið ætti ekki að framlengja samning Gíslasonar, sem rennur út eftir HM 2027 á heimavelli Þjóðverja. Þýska landsliðið hefur nú tapað ellefu leikjum í röð gegn Danmörku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.