Sendiherrar fyrir HM 2027 kynntir
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Þýska handknattleikssambandið hefur kynnt fjóra fyrrverandi landsliðsmenn sem verða sérstakir sendiherrar heimsmeistaramóts karla árið 2027 sem fram fer í Þýskalandi.

Það eru þau Dominik Klein, Stefan Kretzschmar, Anja Althaus og Pascal Hens sem munu gegna hlutverkinu og kynna mótið á næstu misserum. Hópurinn var formlega kynntur á landsleik Þýskalands og Danmerkur í Köln um helgina.

HM 2027 fer fram dagana 13. til 31. janúar undir slagorðinu „Where handball is alive“. Leikið verður í München, Stuttgart, Kiel, Magdeburg, Hannover og Köln.

Mark Schober, framkvæmdastjóri DHB, sagði að markmiðið með ráðningu sendiherranna væri að auka áhuga og tryggja full hús á leikjum mótsins. Samkvæmt honum hafa rúmlega 60 prósent miða þegar selst, en sambandið vonast eftir enn meiri sölu þegar dregið verður í riðla í júní.

Dominik Klein og Pascal Hens voru báðir hluti af þýska liðinu sem varð heimsmeistari á heimavelli árið 2007, en Stefan Kretzschmar og Anja Althaus eru einnig meðal þekktustu handboltaandlita Þýskalands síðustu tvo áratugi.

Íslenska landsliðið mun leika riðlakeppnina í Magdeburg en dregið verður í riðla í München 10. júní næstkomandi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top