
Þrátt fyrir að danska félagið HØJ Elite hafi fallið niður í 1. deild eftir eins árs dvöl í dönsku úrvalsdeildinni hefur markvörðurinn reyndi, Jannick Green ákveðið að taka slaginn með liðinu í dönsku 1.deildinni. Þetta þýðir að HØJ Elite mun njóta góðs af mikilli reynslu Jannick Green sem gengur í raðir félagsins frá Paris Saint-Germain en þar áður lék hann með Magdeburg. Þar að auki hefur hann leikið 145 landsleiki fyrir danska landsliðið, þar sem Jannick Green hefur meðal annars unnið Ólympíugull og HM-gull. Jannick Green hlakkar til að verða hluti af HØJ Elite og hann hefur miklar væntingar til framtíðar félagsins. „Þetta er mjög spennandi verkefni sem HØJ Elite er að vinna að. Auðvitað er það synd að liðið hafi fallið um deild og enginn okkar bjóst við því. En það breytir því ekki að ég sé tækifæri í þessu fyrir félagið og ég hlakka til að verða hluti af HØJ fjölskyldunni og leggja mitt af mörkum með reynslu minni og færni. Nú snýst þetta um að skapa eins sterkt lið og mögulegt er, svo að við getum komist upp í deildinni aftur eins fljótt og auðið er,“ sagði Jannick Green.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.