
Göppingen gerði góða ferð til Hamburg og vann sex marka sigur á heimamönnum í HSV Hamburg 28-34 í þýsku Bundesligunni í kvöld. Göppingen var þremur mörkum yfir í hálfleik 13-16 en liðið hafði mikla yfirburði í leiknum og náði mest níu marka forystu í seinni hálfleik í stöðunni 14-23. Ýmir Örn Gíslason var áfram fjarverandi í liði Göppingen en Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Hamburg. Hollendingurinn Rutger Ten Velde fór á kostum í kvöld og skoraði sjö mörk og Erik Persson gerði slíkt hið sama. Göppingen er áfram í 9.sæti deildarinnar með 33 stig, tveimur stigum á eftir Rhein Neckar Löwen. HSV Hamburg er hinsvegar í 11.sæti deildarinnar með 27 stig, stigi á eftir Hannover-Burgdorf.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.