
Eftir 32 umferðir í þýsku Bundesligunni er Mathias Gidsel markahæsti leikmaður deildarinnar með 278 mörk fyrir Füchse Berlin. Samkvæmt tölfræði Handball-Bundesliga er Gidsel með tæplega níu mörk að meðaltali í leik og gæti farið yfir 300 mörk áður en tímabilinu lýkur. Það hafa aðeins Kyung-Shin Yoon og Marko Grgic áður afrekað í sögu deildarinnar. Kai Häfner hjá TVB Stuttgart er næstur á listanum með 243 mörk og Ómar Ingi Magnússon hjá Magdeburg er í þriðja sæti með 218 mörk. Íslenski landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson er svo kominn mjög nálægt 200 marka múrnum. Leikstjórnandinn hjá Rhein-Neckar Löwen hefur skorað 196 mörk á tímabilinu og er í fjórða sæti markalistans. Þar af hafa 61 mark komið af vítalínunni. Jannik Kohlbacher, August Pedersen og Niels Versteijnen eru næstir á eftir Hauki með 194 mörk hver. Emil Jakobsen er með 191 mark og Nicolaj Jörgensen hefur skorað 190 mörk fyrir HSV Hamburg. Viggó Kristjánsson hjá HC Erlangen með 137 mörk en hann hefur lokið keppni þetta árið sökum meiðsla.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.