
Það bjuggust sennilega ekki margir við því að Kadetten Schaffhausen færu í sumarfrí án þess að vinna leik í úrslitaeinvíginu gegn HC Kriens Luzern en það hinsvegar varð ljóst í kvöld eftir þriðja sigur HC Kriens Luzern í jafn mörgum leikjum í úrslitaeinvíginu í Sviss. Eftir að hafa orðið svissneskur meistari fyrstu þrjú árin sín í Sviss með Kadetten Schaffhausen varð Óðinn Þór Ríkharðsson að sætta sig við silfur með liðinu í ár eftir tapið í kvöld á heimavelli. HC Kriens Luzern vann sex marka sigur 39-33 eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik 21-20. Óðinn Þór var næst markahæstur í liði Kadetten með sex mörk úr átta skotum, hann skoraði fjögur mörk úr sex vítaskotum. Um var að ræða fyrsta meistaratitil HC Kriens Luzern í sögu félagsins en Kadetten Schaffhausen höfðu unnið meistaratitilinn síðustu fjögur tímabil. HC Kriens Luzern hafa sótt sterka leikmenn fyrir næstu leiktíð og eru því taldir ansi sigurstranglegir á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.