

ndustria Kielce er aftur orðið pólskt meistara lið eftir öruggan 36-27 sigur á Orlen Wisła Płock á heimavelli í Hala Legionów. Kielce hafði fjögurra marka forskot í hálfleik, 18-14, og lét það aldrei af hendi í síðari hálfleiknum. Með sigrinum vann Kielce sinn 21. pólska meistaratitil og batt jafnframt enda á þriggja ára yfirráð Wisła Płock í pólskum handbolta. Sigurinn var því sérstaklega sætur fyrir stuðningsmenn félagsins þar sem bikarinn var afhentur á Kielce. Fyrirliði liðsins, Alex Dujshebaev, átti afar góðan leik og skoraði 10 mörk. Markvörðurinn Klemen Ferlin var einn af lykilmönnum sigursins með öfluga frammistöðu í markinu. Leikurinn var jafnframt sá síðasti hjá bræðrunum Alex og Daniel Dujshebaev í gulu, hvítu og bláu treyju Kielce á heimavelli. Báðir yfirgefa félagið í sumar og halda til Þýskalands, þar sem Alex mun leika með VfL Gummersbach og Daniel með MT Melsungen. Fyrir leikinn hafði Daniel Dujshebaev gert grín að stöðunni á blaðamannafundi. „Ég vona að þetta verði síðasti leikurinn minn fyrir Industria. Það væri best að þurfa ekki að fara aftur til Płock,“ sagði spænski leikstjórnandinn léttur í bragði. Ósk hans rættist og hann kvaddi Kielce með meistaratitli, rétt eins og bróðir hans Alex.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.