Ungur línumaður semur í Kórnum
HK Handbolti

Guðrún Antonía Jóhannsdóttir hefur samið við uppeldisfélag sitt HK og gerir tveggja ára samning við félagið. HK tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í vikunni.

Guðrún Antonía sem er fædd árið 2008 leikur sem línumaður og hefur verið hluti af gríðarlega sterkum árgangi í yngri flokkum HK. Hún bíður nú þess að leika sína fyrstu leiki í Olís-deild kvenna en HK eru nýliðar í Olís-deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa unnið Grill66-deildina.

,,Guðrún hefur á liðnu tímabili sýnt miklar framfarir og bindur HK miklar vonir við hana á komandi árum," segir í tilkynningunni frá HK. Það verður gaman að fylgjast með Guðrúnu í Olís-deildinni í vetur.

Dagur Snær Steingrímsson er nýráðinn þjálfari HK og tekur við liðinu af Hilmari Guðlaugssyni. HK hefur að skipa gríðarlega öflugum hópi leikmanna sem flestar eru uppaldar hjá félaginu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top