Magdeburg fékk titilinn afhentan og Leipzig féll úr úrvalsdeildinni
Ronny Hartmann / AFP

Fjölmargir leiki fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem næsta seinasta umferðin í deildinni byrjaði.

SC Magdeburg vann VfL Gummersbach 38-35 eftir leik þar sem gestirnir veittu meisturunum harða mótspyrnu í rúmar 50 mínútur. Með sigrinum gat Magdeburg ekki aðeins fagnað meistaratitlinum heldur einnig kveðjustund sjö leikmanna sem yfirgefa félagið eftir tímabilið.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir Magdeburg, Ómar Ingi Magnússon 3 og Elvar Örn Jónsson komst ekki á blað. Hjá Gummersbach skoraði Teitur Örn Einarsson 1 mark en Elliði Snær Viðarsson var ekki í leikmannahóp Gummersbach í kvöld.

Í síðasta heimaleik Patrick Groetzki í Bundesligunni tryggði Rhein-Neckar Löwen sér dramatískan 29-28 sigur á TSV Hannover-Burgdorf. Löwen hafði þriggja marka forskot stóran hluta leiksins og var leitt áfram af Hauk Þrastasyni og Jannik Kohlbacher. Hannover gafst þó ekki upp og jafnaði metin á lokamínútunum.

Daniel Weber virtist hafa tryggt gestunum jafntefli með marki á lokasekúndunum, en markið kom of seint. Aukakast sem Hannover fékk eftir myndbandsdómgæslu fór síðan í vörn Löwen og sigurinn var í höfn. Að leik loknum var Groetzki heiðraður af félaginu.

Haukur Þrastarson fór á kostum í kvöld og kom að 20 mörkum heimamanna en hann skorað 11 og gaf 9 stoðsendingar.

GWD Minden heldur enn í vonina um að bjarga sér frá falli eftir sterkan 34-30 sigur á THW Kiel. Nýliðarnir þurfa enn á hagstæðum úrslitum annarra liða að halda, en sigurinn tryggði að fallbaráttan verður ekki útkljáð fyrr en í lokaumferðinni.

TVB Stuttgart fagnaði sínum fyrsta útisigri á tímabilinu þegar liðið vann Frisch Auf Göppingen 32-33. Þrátt fyrir að fá þrjú rauð spjöld á síðustu tíu mínútunum tókst Stuttgart að halda út. Linus Schmid tryggði sigurinn með marki um leið og leiktíminn rann út. Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað hjá Göppingen í kvöld.

Í síðasta leik kvöldsins sneru heimamenn taflinu við eftir sterka byrjun Leipzig. Eftir jafnan síðari hálfleik tryggðu þeir sér 30-28 sigur. Markvörðurinn Constantin Möstl átti stórleik og varði 14 skot, sem reyndist lykillinn að sigrinum. Með þessum úrslitum er ljóst að Leipzig eru fallnir í leika í næst efstu deild á næsta ári. Blær Hinriksson var markahæstur hjá Leipzig í kvöld með 5 mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top