Møller og Golla teknir inn í Frægðarhöll Flensburg
Michael Hundt / AFP

Danski markvörðurinn Kevin Møller og þýski línumaðurinn Johannes Golla voru heiðraðir sérstaklega af SG Flensburg-Handewitt þegar liðið lék síðasta heimaleik sinn á tímabilinu gegn ThSV Eisenach í gærkvöldi.

Báðir yfirgefa þeir Flensburgarliðið í sumar og í tilefni þess voru þeir teknir inn í Frægðarhöll félagsins, "Hall of Fame" sem er ein mesta viðurkenning sem félagið veitir fyrrverandi og núverandi leikmönnum sínum.

Johannes Golla gengur í raðir Evrópudeildarmeistara, MT Melsungen í sumar en landsliðsmaðurinn, Arnar Freyr Arnarsson fyllir hans skarð og gengur í raðir Flensburg í sumar. Þá gengur danski markvörðurinn, Kevin Møller í raðir GOG í heimalandinu.

Með þessu undirstrikar Flensburg mikilvægi þeirra beggja fyrir félagið undanfarin ár. Møller hefur verið einn traustasti markvörður liðsins, á meðan Golla hefur gegnt lykilhlutverki bæði innan vallar sem utan sem fyrirliði liðsins.

Kevin Møller lék alls níu tímabil með þýska félaginu en hann lék einnig með Barcelona í millitíðinni og þá hefur þýski landsliðsmaðurinn, Johannes Golla leikið níu ár samfleytt með þýska félaginu.

17 February 2026, Schleswig-Holstein, Flensburg: Handball: EHF European League, SG Flensburg-Handewitt - THW Kiel, Main Round, Group 1, Matchday 1, GP JOULE Arena. Kiel's Bence Imre converts a penalty shot against Flensburg's goalkeeper Kevin Moller (r). Photo: Frank Molter/dpa (Photo by FRANK MOLTER / dpa Picture-Alliance via AFP)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top