Rúnar hélt Wetzlar uppi – Gidsel setti markamet í lokaumferð Bundesligunnar
JAN WOITAS / dpa Picture-Alliance via AFP)

Lokaumferð þýsku Bundesligunnar bauð upp á mikla dramatík, markaveislur og sorg. GWD Minden féll úr deildinni á loksekúndunum, HSG Wetzlar tryggði sér áframhaldandi veru meðal þeirra bestu og Mathias Gidsel setti nýtt persónulegt markamet þegar Füchse Berlin lagði SG Flensburg-Handewitt að velli.

Minden féll eftir skot í stöng á lokasekúndunni

Eftir aðeins eitt tímabil í efstu deild er GWD Minden fallið úr Bundesligunni.

Minden lenti sex mörkum undir gegn SC DHfK Leipzig en sýndi mikinn karakter og náði að jafna í 22-22 í síðari hálfleik. Markvörðurinn Malte Semisch og fyrrum Leipzig-leikmaðurinn Niclas Heitkamp voru meðal lykilmanna í endurkomunni.

Leikurinn réðst þó á lokasekúndunum. Leipzig komst yfir 26-25 og Minden fékk síðustu sókn leiksins. Með sjö útileikmenn inni á vellinum fékk Jakub Sterba tækifæri til að jafna og tryggja liðinu sæti í deildinni, en skot hans hafnaði í stönginni. Þar með vann Leipzig 26-25 og fall Minden var staðfest.

Blær Hinriksson skoraði 2 mörk fyrir Leipzig í leiknum sem voru fallnir fyrir lokaumferðina.

Wetzlar bjargaði sér þrátt fyrir tap

Mikill léttir ríkti hjá HSG Wetzlar eftir lokaumferðina. Þrátt fyrir 31-30 tap gegn þýsku meisturunum í SC Magdeburg tryggði félagið sér áframhaldandi veru í Bundesligunni.

Wetzlar veitti Magdeburg harða keppni allan leikinn og fékk síðan hjálp frá úrslitum annarra leikja sem tryggðu liðinu sæti í deildinni sem verður að teljast frábær árangur hjá Rúnari Sigtryggssyni þjálfara liðsins.

Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon skoruðu báðir 5 mörk fyrir Magdeburg í dag og Elvar Örn Jónsson gerði 1 mark.

Gidsel skoraði 18 mörk í markaveislu

Leikur Füchse Berlin og SG Flensburg-Handewitt hafði lítil áhrif á lokastöðuna, en liðin buðu engu að síður upp á stórskemmtilega markasýningu.

Varnarleikurinn sat á hakanum og danski landsliðsmaðurinn Mathias Gidsel nýtti sér það til fulls. Daninn skoraði 18 mörk og setti nýtt persónulegt markamet þegar Berlín vann 43-38. Staðan í hálfleik var 22-20.

Lemgo skaust upp í fimmta sætið

TBV Lemgo Lippe tryggði sér fimmta sætið í deildinni með 34-31 útisigri á THW Kiel.

Markvörðurinn Constantin Möstl átti stórleik og var hreint út sagt magnaður í leik dagsins og varði 13 skot eða 35% skotanna sem komu á hann.

Tap Kiel þýddi jafnframt að félagið hafnaði utan fimm efstu sætanna í lok tímabilsins sem verður að teljast óásættanlegur árangur hjá þessu stórveldi.

Melsungen hélt sjöunda sætinu

MT Melsungen gerði 32-32 jafntefli við TSV Hannover-Burgdorf og tryggði sér þar með sjöunda sætið án þess að þurfa að treysta á úrslit annarra liða.

Hannover hafði byggt upp fimm marka forskot í fyrri hálfleik en tókst ekki að halda því út. Jafnteflið dugði Melsungen til að tryggja sér sæti sem veitir liðinu frí í fyrstu umferð DHB-bikarsins á næsta tímabili.

Arnar Freyr Arnarsson skoraði 1 mark fyrir Melsungen en Reynir Þór Stefánsson var ekki meðal markaskorara í dag.

Gummersbach vann spennutrylli

VfL Gummersbach lagði Rhein-Neckar Löwen 28-27 í algjörum spennutrylli þar sem úrslitin réðust að lokasekúndum leiksins.

Gummersbach hafði mest fjögurra marka forskot en Löwen náði að snúa leiknum við í síðari hálfleik. Á lokamínútunum steig markvörðurinn Dominik Kuzmanovic fram og tryggði heimamönnum sigur með vítavörslu.

Haukur Þrastarson skoraði 5 mörk fyrir Rhein-Necker Löwen. Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson leika með Gummersbach en voru ekki meðal markaskorara í dag.

Hamburg sneri við taflinu í Eisenach

ThSV Eisenach ætlaði að kveðja stuðningsmenn sína með sigri og leiddi 18-15 í hálfleik gegn HSV Hamburg.

Gestirnir tóku hins vegar yfir leikinn eftir hlé. Hamburg skoraði 25 mörk í síðari hálfleik og sneri leiknum sér í hag með 40-33 sigri.

Þrátt fyrir tapið kvöddu stuðningsmenn Eisenach bæði fráfarandi leikmenn og lið sitt með lófataki eftir tímabil þar sem félagið þurfti aldrei að óttast fall.

Einar Þorsteinn Ólafsson leikur með Hamburg en skoraði ekkert í dag.

Stuttgart kláraði tímabilið með sigri

TVB Stuttgart vann HC Erlangen 22-17 í leik þar sem sóknarleikur var ekki í aðalhlutverki.

Erlangen leiddi 9-7 í hálfleik en heimamenn náðu yfirhöndinni eftir hlé. Kasper Thorsen Lien innsiglaði meðal annars 4-0 kafla sem kom Stuttgart í 11-9 og þaðan hélt liðið áfram að auka forskot sitt.

Bergischer HC lauk tímabilinu með dramatískum sigri

Bergischer HC endaði tímabilið með 29-28 sigri á Frisch Auf Göppingen.

Heimamenn leiddu 19-13 í hálfleik og komust sjö mörkum yfir snemma í síðari hálfleik. Göppingen gafst þó ekki upp og náði að jafna í fyrsta sinn síðan á 12. mínútu þegar Erik Persson skoraði 48 sekúndum fyrir leikslok.

Bergischer fékk þó síðustu sóknina og nýtti hana fullkomlega. Noah Beyer skoraði sigurmarkið átta sekúndum fyrir leikslok og tryggði nýliðunum glæsilegan endi á tímabil sem endaði með öruggu sæti í Bundesligunni.

Lokaumferðin bauð því upp á allt sem handboltaunnendur gátu óskað sér: dramatík í fallbaráttu, markaveislur, met og sigur á síðustu sekúndum.

Úrslit dagsins:
Wetzlar – Magdeburg 30-31
Fusche Berlin – Flensburg 43-38
Kiel – Lemgo 31-34
Hannover – Melsungen 32-32
Gummersbach – Rhein-Necker Löwen 28-27
Eisenach – Hamburg 33-40
Stuttgart – Erlangen 22-17
Bergischer – Göppingen 29-28


Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top