Meistararnir með fæstu tæknifeilana
Ronny HARTMANN / AFP

Þegar tímabilinu í þýsku Bundesligunni er lokið liggur fyrir að tæknifeilar höfðu veruleg áhrif á gengi liðanna. Í hraðri og krefjandi deild eins og Bundesligunni geta of margir tapaðir boltar skipt sköpum í baráttunni um stig og titla.

Tölfræðin sýnir að aðeins þrjú lið voru með meira en tíu tæknifeila að meðaltali í leik á tímabilinu. Bergischer HC var efst á þeim lista með 10,59 tæknifeila að meðaltali í leik, á undan ThSV Eisenach og SC DHfK Leipzig.

Í hinum enda listans voru þýsku meistararnir SC Magdeburg með fæsta tæknifeila allra liða, eða aðeins 6,59 að meðaltali í leik. Þar á eftir komu TBV Lemgo Lippe og Füchse Berlin.

Athygli vekur hversu lítill munur er á mörgum liðum deildarinnar. Aðeins einn tæknifeill að meðaltali skilur að SG Flensburg-Handewitt í sjötta sæti og HC Erlangen í fimmtánda sæti.

Þegar kemur að einstökum leikmönnum var Felix Aellen hjá ThSV Eisenach með flestar tæknifeila á tímabilinu, alls 134.

Í öðru sæti var Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá SC Magdeburg með 84 tapaða bolta og í því þriðja Haukur Þrastarson hjá Rhein-Neckar Löwen með 79.

Það endurspelgar einnig hversu mikla ábyrgð þessir leikmenn bera í sóknarleik sinna liða, enda eru þeir mikið með boltann í höndunum og stýra stórum hluta sóknaraðgerða liðanna.

Hér að neðan má sjá lista yfir öll liðin í þýsku deildinni:

SætiLiðTæknifeilarMeðaltal í leik
1SC Magdeburg2246,59
2TBV Lemgo Lippe2667,82
3Füchse Berlin2687,88
4THW Kiel2748,06
5TSV Hannover-Burgdorf2838,32
6SG Flensburg-Handewitt2988,76
7HSG Wetzlar2998,79
8MT Melsungen3028,88
9Frisch Auf Göppingen3069,00
10TVB Stuttgart3119,15
11VfL Gummersbach3129,18
12Rhein-Neckar Löwen3189,35
13HSV Hamburg3209,41
14GWD Minden3279,62
15HC Erlangen3339,79
16SC DHfK Leipzig34110,03
17ThSV Eisenach34910,26
18Bergischer HC36010,59

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top