Christian Zeitz segir ákvörðun THW Kiel um að láta Filip Jicha fara úr starfi aðalþjálfara vera skiljanlega út frá íþróttalegum sjónarmiðum, þótt hún sé sár fyrir hann persónulega. Eftir að Kiel missti af Evrópusæti á næsta tímabili ákvað félagið að slíta samstarfinu við Jicha. Zeitz, sem lék árum saman með Kiel og var liðsfélagi Jicha, segir árangurinn síðustu ár hafa verið undir væntingum félagsins. „Í atvinnuíþróttum – og sérstaklega í handbolta – eru það að lokum bara úrslitin sem skipta máli,“ sagði Zeitz í viðtali við handball-world. Að hans mati hefur bilið á milli væntinga félagsins og raunverulegs árangurs verið orðið of stórt. „Þegar þú missir af Meistaradeildinni þrjú ár í röð og ert nú ekki einu sinni í Evrópudeildinni, þá er erfitt að fegra tímabilið.“ Zeitz bendir þó á að Jicha þekki vel lögmál afreksíþrótta. „Sérhver þjálfari veit að starf hans í afreksíþróttum hefur ákveðinn líftíma. Filip vissi það líka.“ Hann viðurkennir þó að ákvörðunin sé sár fyrir sig þar sem hann og Jicha séu góðir vinir frá því þeir spiluðu saman hjá Kiel. Fyrrum heimsmeistarinn telur jafnframt eðlilegt að breytingar hafi verið gerðar eftir jafn erfitt tímabil. „Að taka ákvörðun um breytingar eftir svona tímabil er eðlilegt ferli og gerist yfirleitt þegar keppnistímabilinu lýkur.“ Það sem vekur hins vegar mesta athygli hjá Zeitz er hversu langan tíma ákvörðunin tók. Meira en tvær vikur liðu frá síðasta deildarleik Kiel þar til félagið staðfesti brottför Jicha og að hans mati bendir það til þess að skoðanir innan félagsins hafi verið skiptar. „Það sýnir hversu erfið ákvörðunin var fyrir stjórnendur og að innan félagsins virðist ekki hafa ríkt raunveruleg samstaða um hvaða leið ætti að fara í langan tíma.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.