Gidsel gæti slegið eitt stærsta met Bundesligunnar á næstu árum

Mathias Gidsel hefur sett hvert metið á fætur öðru undanfarin ár og nú er eitt stærsta met í sögu þýsku Bundesligunnar ekki lengur utan seilingar.

Hans Lindberg er markahæsti leikmaður í sögu Bundesligunnar með 3.114 mörk. Hann tók metið af Kyung-Shin Yoon í maí 2023 og er enn sá eini sem hefur skorað yfir 3.000 mörk í deildinni.

Gidsel hefur hins vegar verið á ótrúlegri siglingu. Nýverið bætti hann bæði metið yfir flest mörk úr opnum leik í Bundesligunni og markamet Meistaradeildarinnar á einu tímabili.

Eftir 127 leiki í Bundesligunni hefur danski heimsleikmaðurinn skorað 994 mörk. Það gerir rúmlega 7,8 mörk að meðaltali í leik, sem er hæsta markaskorunarmeðaltal í sögu deildarinnar.

Ef Gidsel heldur þeirri markaskorun út fer hann fram úr Lindberg eftir um 272 Bundesliga-leiki. Það jafngildir um átta tímabilum, að því gefnu að hann haldist heill og spili áfram á sama stigi. Samkvæmt þeirri sviðsmynd gæti metið fallið á tímabilinu 2033/34, þegar Gidsel verður 35 ára.

Tölfræðin gefur þó til kynna að það gæti gerst enn fyrr. Markaskorun hans hefur aukist með hverju tímabili frá því hann kom til Bundesligunnar. Á fyrsta tímabilinu skoraði hann að meðaltali 5,3 mörk í leik en á nýafstöðnu tímabili var meðaltalið komið upp í 9,3 mörk.

Ef Gidsel nær að viðhalda þeirri markaskorun þyrfti hann aðeins um 228 leiki til að ná Lindberg. Það samsvarar um 6,7 tímabilum og myndi þýða að hann gæti orðið markahæsti leikmaður í sögu Bundesligunnar strax á tímabilinu 2031/32.

Þótt enn séu rúm 2.100 mörk upp í met Lindbergs hefur Gidsel þegar sýnt að hann er fær um að endurskrifa sögubækur þýska handboltans. Haldi þróunin áfram gæti eitt virtasta einstaklingsmet deildarinnar fallið mun fyrr en margir hefðu talið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top