Þýska Handknattleiksdeildin (HBL) telur að komur nokkurra stærstu stjarna heims á næstu árum skapi einstakt tækifæri til að efla vinsældir deildarinnar og handboltans í heild. Á fundi eigenda félaga í efstu tveimur deildum Þýskalands í Köln var markaðssetning leikmanna og félaga eitt helsta umræðuefnið. Þar sagði framkvæmdastjóri HBL, Frank Bohmann, að deildin þyrfti að leggja mun meiri áherslu á að kynna stærstu stjörnur sínar. „Við teljum að við þurfum að fjárfesta mun meira í vörumerkjum félaganna og leikmannanna. Leikmaður eins og Dika Mem eða Kiko Costa hjálpar okkur aðeins ef við gerum hann þekktan – og ekki bara innan handboltasamfélagsins,“ sagði Bohmann. Á næstu árum munu nokkrir af þekktustu leikmönnum Evrópu leika í Bundesligunni. Dika Mem gengur til liðs við Füchse Berlin árið 2027, Alex Dujshebaev verður leikmaður VfL Gummersbach og Costa-bræðurnir, Francisco og Martim, hafa verið sterklega orðaðir við SG Flensburg-Handewitt frá og með árinu 2027. Að sögn Bohmann eru slík félagaskipti mikilvægur þáttur í að styrkja ímynd deildarinnar. „Við sjáum þar tækifæri. Stór nöfn skapa mikla möguleika í markaðssetningu og við ætlum að nýta þá.“ Á fundinum var einnig kynnt ný þjónusta sem HBL mun bjóða öllum félögum deildarinnar. Með henni verður hægt að mæla nákvæmlega hvaða verðmæti styrktaraðilar fá með sýnileika sínum á samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum miðlum. „Ef félag birtir til dæmis mynd af leikmanni að skjóta þar sem merki styrktaraðila sést í bakgrunni getum við mælt hvaða virði sú birting hefur fyrir styrktaraðilann,“ útskýrði Bohmann. Fram að þessu hafa slíkar mælingar fyrst og fremst byggst á sjónvarpsútsendingum, en framvegis verða allir stafrænir miðlar teknir með í reikninginn. Markmiðið er að skapa aukið virði fyrir bæði félög og styrktaraðila, þar á meðal nýjan aðalstyrktaraðila deildarinnar, Opel, sem tók í fyrsta sinn þátt í fundi eigenda félaganna. Með sífellt fleiri stórstjörnum á leið í Bundesliguna vonast forráðamenn deildarinnar til að nýta aukinn áhuga á handboltanum til að efla bæði ímynd deildarinnar og tekjumöguleika félaganna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.