Þrátt fyrir að THW Kiel hafi misst af sæti í Evrópukeppni í fyrsta sinn í 33 ár og sagt upp þjálfaranum Filip Jicha eftir vonbrigðatímabil á félagið enn eitt glæsilegasta met í sögu þýsku Bundesligunnar. Þrátt fyrir erfið lok á samstarfinu á Tékkinn þó stóran þátt í einu merkilegasta afreki félagsins. Frá 22. maí 2011 til 12. september 2012 vann THW Kiel alls 40 Bundesliguleiki í röð og setti met sem stendur enn í dag. Sigurgangan spannar tvö tímabil og inniheldur meðal annars hið sögufræga tímabil 2011/12 þegar Kiel vann alla 34 deildarleiki sína og varð Þýskalandsmeistari með fullt hús stiga. Engu öðru liði hefur tekist að jafna eða bæta það met. SG Flensburg-Handewitt komst næst því að jafna metið þegar liðið vann 32 leiki í röð á tímabilinu frá apríl 2018 til mars 2019. THW Kiel á einnig þriðju lengstu sigurgöngu deildarsögunnar með 27 sigra í röð á árunum 2008 og 2009.Lengstu sigurgöngur í sögu Bundesligunnar
Lið Sigrar í röð Tímabil THW Kiel 40 22. maí 2011 – 12. september 2012 SG Flensburg-Handewitt 32 1. apríl 2018 – 21. mars 2019 THW Kiel 27 6. september 2008 – 15. apríl 2009

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.