Alfreð Gíslason segir handboltann hafa tekið miklum breytingum frá því hann lagði skóna á hilluna fyrir rúmum þremur áratugum. Þýski landsliðsþjálfarinn fagnar hraðari leik en er harðorður í garð einnar taktískrar þróunar sem hefur fest sig í sessi á undanförnum árum. Í viðtali við Sport Bild segir Gíslason að handboltinn í dag sé nánast allt önnur íþrótt en þegar hann sjálfur lék. „Þetta er orðið allt önnur íþrótt. Hraðaupphlaupin í dag eru frábær og ég hefði elskað að upplifa það sem leikmaður,“ sagði hann. Að mati Alfreðs hefur hraðari miðja og meiri hraði í leiknum gert handboltann mun meira aðlaðandi. Þrátt fyrir það er ein breyting sem Gíslason á erfitt með að sætta sig við. Hann gagnrýnir harðlega þá leikaðferð að taka markvörðinn af velli og bæta sjöunda útileikmanninum inn í sóknina. „Það sem mér líkar ekki er sjö gegn sex, þegar markvörðurinn er tekinn út fyrir útileikmann. Fyrir mér eru það skemmdarverk á handboltanum. Með þessu tekur maður marga möguleika frá liðinu, til dæmis að spila framarlega í vörninni.“ Þrátt fyrir gagnrýnina gerir Alffreð sér grein fyrir því að íþróttin heldur áfram að þróast og reglur muni breytast. Hann viðurkennir jafnframt að hafa sjálfur gripið til sjö á móti sex leikaðferðarinnar með þýska landsliðinu þegar aðstæður hafa kallað á það, þó aðeins í undantekningartilvikum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.