Pelach skrifaði söguna á U18 EM
EHF

Ísraelski handboltamaðurinn Yonathan Pelach skrifaði nafn sitt í sögubækur evrópsks unglingahandbolta á U18 Evrópumótinu sem lauk um helgina.

Pelach lauk keppni með hvorki meira né minna en 97 mörk í átta leikjum og setti þar með nýtt markamet á U18 Evrópumóti karla.

Pelach skoraði að meðaltali 12,1 mark í leik á mótinu og endaði sem markahæsti leikmaður þess.

Fyrra metið átti Eistinn Mait Patrail, sem skoraði 84 mörk á U18 Evrópumótinu árið 2006.

Pelach bætti því met Patrail, sem hafði staðið í tvo áratugi, um heil 13 mörk.

LeikmaðurMótMörk
Yonathan PelachU18 EM 202697
Mait PatrailU18 EM 200684

Pelach hafði þegar vakið mikla athygli fyrr á mótinu með gríðarlegri markaskorun en hélt sama dampi allt til loka.

Niðurstaðan varð sögulegt mót hjá hinum unga Ísraela, sem yfirgefur Serbíu sem markakóngur U18 Evrópumótsins og nýr methafi keppninnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top