Hamburg skiptir um nafn – nýtt nafn og nýtt merki
Hamburg Handball Club

Þýska Bundesligufélagið Handball Sport Verein Hamburg hefur ákveðið að breyta um nafn og mun framvegis heita Handball Club Hamburg, skammstafað HCH.

Félagið hefur samhliða nafnabreytingunni kynnt nýtt merki og segir breytingarnar marka upphafið að nýjum kafla í sögu félagsins.

Gamla nafnið, Handball Sport Verein Hamburg, hefur fylgt félaginu en nú hefur verið ákveðið að taka skrefið yfir í Handball Club Hamburg.

Með nýju nafni og uppfærðu merki vill félagið undirstrika eigin og sjálfstæða ímynd.

Það gæti tekið stuðningsmenn þýska handboltans smá tíma að venjast því að tala um Handball Club Hamburg í stað Handball Sport Verein Hamburg, en HCH verður nafnið sem Hamborgarliðið ber inn í næsta tímabil í Bundesligunni.

Nafnabreytingin er samkvæmt félaginu táknræn fyrir nýtt upphaf og næsta kafla í sögu þess.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top