Füchse kaupir ekki arftaka Andersson
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Füchse Berlin ætlar ekki að sækja nýjan leikmann til að fylla skarð Lasse Andersson fyrir komandi tímabil. Bob Hanning, framkvæmdastjóri félagsins, staðfesti það við kynningu liðsins fyrir styrktaraðila og segist hafa fulla trú á Matthes Langhoff í stöðu vinstri skyttu.

Mikið hefur verið rætt um hvort Füchse myndi fara aftur á leikmannamarkaðinn eftir brotthvarf Andersson. Hanning tók af allan vafa á kynningarkvöldinu.

„Við ætlum ekki að kaupa neinn. Ekki vegna þess að við gætum það ekki,“ sagði Hanning.

Stefan Kretzschmar, fyrrverandi íþróttastjóri Füchse, hafði áður gefið í skyn að félagið væri búið að ljúka leikmannamálum sínum fyrir tímabilið og Hanning útskýrði nú hvers vegna félagið ætlar ekki að bæta við hópinn.

„Við myndum gera það ef það væri eitthvað á markaðnum sem myndi raunverulega hjálpa okkur. En það er ekki,“ sagði Hanning. Hann ætlar ekki að kaupa leikmann einungis til þess að fylla sæti í hópnum.

„Að eyða miklum peningum fyrir litla frammistöðu hefur aldrei verið minn styrkleiki. Og ég ætla ekki að byrja á því næstu tvö árin heldur.“

Þess í stað fær Matthes Langhoff tækifæri til að festa sig í sessi í stöðu vinstri skyttu. Hanning hafði þegar fyrir tímabilið bent á Langhoff sem einn þeirra leikmanna sem meira myndi mæða á í vetur.

Hanning gekk raunar svo langt að segja umræðuna um nauðsyn þess að finna arftaka Andersson vera ósanngjarna gagnvart Langhoff.

„Mér finnst þetta líka svolítið óvirðulegt vegna þess að í Matthes Langhoff erum við með leikmann í þessari stöðu sem ég treysti hundrað prósent til að fylla skarðið sem Lasse skilur eftir sig.“

Füchse útilokar þó ekki að bæta við leikmanni síðar ef rétti kosturinn kemur upp. „Ef Nicolej Krickau kemur og segir: ‚Ég vil þennan leikmann. Nú erum við með leikmann sem getur hjálpað okkur á þessum tímapunkti,‘ þá útbúum við samninginn á morgun.“

Hanning segir hins vegar að félagið muni ekki kaupa leikmann nema um raunverulega styrkingu sé að ræða. „Það sem við ætlum ekki að gera er að taka tilboðum umboðsmanna og kaupa meðalmennsku á fáránlega háu verði. Það meikar engan sens.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top