Óvissa ríkir um hvort Ómar Ingi Magnússon verði klár í slaginn þegar SC Magdeburg mætir til leiks í þýska Ofurbikarnum eftir viku. Íslenski landsliðsmaðurinn hefur glímt við vöðvameiðsli og Bennet Wiegert, þjálfari Magdeburg, segir erfitt að segja til um hvenær hann geti snúið aftur. Ómar Ingi hefur verið frá vegna meiðslanna að undanförnu og tók ekki þátt þegar þýsku meistararnir unnu GWD Minden í æfingaleik á þriðjudagskvöld. „Hann er áfram okkar stærsta áhyggjuefni,“ sagði Wiegert eftir leikinn. Þjálfarinn gat ekki gefið nákvæma tímasetningu á endurkomu Ómars Inga. „Við vitum ekki hversu langan tíma þetta tekur hjá honum. Ég get ekki spáð fyrir um það,“ sagði Wiegert við Sport Bild. Wiegert vonast þó enn til þess að Ómar Ingi verði tilbúinn fyrir Ofurbikarinn í München næsta laugardag. Takist það ekki er markmiðið að hann verði klár þegar Magdeburg hefur titilvörn sína í Bundesligunni 27. ágúst. Tíminn er hins vegar farinn að vinna gegn honum. „Ég er enn að vonast til þess að hann verði með í Ofurbikarnum eða í byrjun deildarinnar, en tíminn er að renna út,“ sagði Wiegert. Þjálfarinn leggur jafnframt áherslu á að undirbúningstímabilið skipti máli fyrir Ómar Inga og að hann þurfi á æfingaleikjunum að halda. „Við erum ekki að gera þetta að ástæðulausu. Hann þarf á hverjum einasta leik á undirbúningstímabilinu að halda.“ Lukas Mertens var heldur ekki með Magdeburg gegn Minden vegna meiðsla. Staðan á honum virðist þó betri en hjá Ómari Inga og er gert ráð fyrir að þýski landsliðsmaðurinn geti snúið aftur til liðsins á næstunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.