Frá nær gjaldþroti í toppbaráttu – Gummersbach ætlar að halda áfram að stækka
Michael Hundt / AFP

VfL Gummersbach hefur á örfáum árum unnið sig aftur í fremstu röð þýska handboltans eftir erfiðan tíma í B-deildinni og miklar fjárhagslegar þrengingar. Christoph Schindler, framkvæmdastjóri félagsins, segir næsta verkefni vera að fylgja íþróttalegum árangri eftir með frekari uppbyggingu utan vallar.

Breytingarnar hafa verið svo hraðar að Schindler segist stundum sjálfur eiga erfitt með að átta sig á þeim.

„Fyrir fjórum eða fimm árum vorum við í B-deildinni og nánast gjaldþrota og nú eigum við allt í einu að vera að ræða um stærri höll. Það er eiginlega ótrúlegt hversu hratt hlutirnir geta breyst,“ sagði Schindler við Handball-World.

Schindler segir grunninn að þeirri stöðu sem Gummersbach er í í dag hafa verið lagðan árið 2018 þegar félagið fór í umfangsmikla endurskipulagningu undir yfirskriftinni „Home of Handball“.

Markmiðið var meðal annars að skapa félaginu skýrari ímynd, ná til nýrra hópa stuðningsmanna og styrkja tengsl fólks við félagið. Um leið hafi þurft að vera hreinskilin um þann mikla fjárhagsvanda sem Gummersbach glímdi við.

Breytingar voru einnig gerðar á íþróttalegu starfi. Meiri áhersla var lögð á uppbyggingu ungra leikmanna og Schindler segir ráðningu Guðjóns Vals Sigurðssonar sem þjálfara hafa verið eina mikilvægustu ákvörðun félagsins.

Leikmannahópurinn var einnig endurbyggður með það að markmiði að fá ekki aðeins góða handboltamenn heldur leikmenn sem pössuðu við þá menningu sem félagið vildi skapa.

„Við fylltum hópinn í auknum mæli af persónuleikum sem pössuðu ekki aðeins inn í okkar íþróttalega skipulag heldur vorum við einnig sannfærð um að myndu bæta karakter og hugarfar liðsins.“

Sér mikil tækifæri í sölu varnings

Uppbyggingin á nú að halda áfram utan vallar og Schindler sér meðal annars mikil tækifæri í sölu á varningi félagsins.

Ný lífstílstreyja Gummersbach er dæmi um þá nálgun. Ólíkt hefðbundinni keppnistreyju er hún án leikmannanafna, númers og auglýsinga fyrirtækja.

Markmiðið er að stuðningsmenn noti vörur merktar Gummersbach ekki eingöngu á leikjum.

„Við viljum auðvitað að fólk klæðist VfL Gummersbach líka utan Schwalbe Arena og viljum ná betur til ungs fólks.“

Markaðs- og samskiptamál eru einnig svið þar sem félagið telur sig geta gert betur.

„Við vitum hvað við gerum vel. En umfram allt vitum við hvað við erum ekki enn að gera nógu vel – og það er margt,“ sagði Schindler.

Stafræn þróun næsta skref

Stafræn þróun er annað stórt áherslusvið hjá Gummersbach.

Félagið vill bæði einfalda vinnuferla og skapa nýjar tekjulindir með stafrænum lausnum. Schindler nefnir meðal annars stærra stafrænt samfélag í kringum félagið, stafrænt auglýsingapláss og fréttabréf sem hægt verði að afla tekna með.

Gögn og stafræn þróun eiga þannig að verða sífellt mikilvægari hluti af rekstri félagsins.

Vill fleiri tekjulindir

Takmörkuð stærð Schwalbe Arena hefur einnig orðið til þess að Gummersbach hefur þurft að leita annarra leiða til tekjuöflunar en miðasölu og hefðbundinna styrktarsamninga.

Félagið hefur meðal annars þróað hugmyndir í kringum vinnustofur og handboltabúðir og Schindler segir möguleikana mun fleiri.

Þessi uppbygging kostar þó peninga og starfsmönnum á skrifstofu félagsins hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Schindler gerir ráð fyrir að sú þróun haldi áfram.

Markmiðið er á endanum skýrt. Auknar tekjur utan vallar eiga að skapa svigrúm til frekari fjárfestinga í liðinu og þannig styðja við áframhaldandi íþróttalega uppbyggingu.

Eitt vandamál er þó erfiðara viðureignar. Ekki er hægt að stækka Schwalbe Arena vegna burðarvirkis hallarinnar.

„Burðarvirki hallarinnar gerir einfaldlega ekki ráð fyrir stækkun,“ sagði Schindler.

Ekki eru heldur uppi áform um að byggja nýja höll.

„Eins og staðan er í dag og í fyrirsjáanlegri framtíð er það hvorki fyrirhugað né raunhæft.“

Schindler útilokar þó ekki að staðan geti litið öðruvísi út eftir fimm eða tíu ár.

Það eitt að stærð heimavallarins sé orðin umræðuefni sýnir hversu hratt staða Gummersbach hefur breyst. Félagið sem var í B-deildinni og nær gjaldþrota fyrir aðeins nokkrum árum er nú aftur komið í hóp sterkari liða Bundesligunnar og leitar leiða til að taka næsta skref bæði innan vallar og utan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top