Guðjón Valur með skýrt markmið í Evrópu – stefnir á Final Four
Michael Hundt / AFP

Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í VfL Gummersbach koma fullir sjálfstrausts inn í nýtt tímabil eftir frábæran árangur í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili. Gummersbach hafnaði í fjórða sæti og Guðjón ætlar sér að byggja áfram ofan á þann árangur.

Fyrsta verkefnið verður þó ekki af auðveldari gerðinni. Gummersbach mætir SC Magdeburg í fyrstu umferð Bundesligunnar og óttast Guðjón Valur það verkefni ekki.

„Auðvitað er Magdeburg gott lið með mikil gæði, en það er alveg eins hægt að byrja gegn þeim bestu,“ sagði Guðjón Valur á blaðamannafundi Gummersbach fyrir tímabilið.

Guðjón segir Magdeburg hafa verið eitt besta félagslið heims undanfarin fimm ár en það breyti ekki metnaði Gummersbach.

„Magdeburg hefur verið eitt besta lið heims í fimm ár en við vitum hvert við viljum fara.“

Markmiðið fyrir tímabilið er að halda áfram þar sem frá var horfið á síðasta tímabili, þegar Gummersbach endaði í fjórða sæti.

„Ég vil að við höldum áfram þar sem við hættum á síðasta tímabili. Ég veit að það er erfitt og ég er að krefjast mikils, en strákarnir myndu ekki vilja hafa það öðruvísi.“

Árangurinn á síðasta tímabili tryggði Gummersbach sæti í Evrópudeildinni og félagið snýr því aftur í keppnina eftir að hafa einnig tekið þátt fyrir tveimur árum. Þá lauk ævintýrinu í umspilinu þar sem MT Melsungen sló Gummersbach úr keppni.

Guðjón Valur lýsir þeirri niðurstöðu sem „biturri reynslu“ og ætlar sér lengra að þessu sinni og markmiðið er ekkert feimnismál.

„Við viljum klárlega gera betur, standa okkur vel og helst komast í Final Four,“ sagði Guðjón Valur.

Hann gerir sér þó grein fyrir því að mikið þarf að ganga upp áður en það markmið verður að veruleika. Gummersbach stendur því frammi fyrir stóru tímabili bæði heima fyrir og í Evrópu. Eftir fjórða sætið í Bundesligunni í fyrra ætlar Guðjón Valur sér ekki að slaka á kröfunum heldur halda áfram að færa félagið nær þeim bestu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top