Mem missir fyrirliðabandið
ANDREZEJ IWANCZUK / AFP)

Dika Mem verður ekki fyrirliði Barcelona á sínu síðasta tímabili hjá spænska stórveldinu. Frakkinn gengur til liðs við Füchse Berlin næsta sumar og hefur nú þurft að láta fyrirliðabandið af hendi til landa síns, Timothey N'Guessan.

Svipað gerðist hjá Gonzalo Perez de Vargas þegar tilkynnt var um félagaskipti hans til THW Kiel. Hann missti þá fyrirliðastöðuna hjá Barcelona og nú hefur Mem lent í sömu stöðu eftir að ljóst varð að hann færi til Berlin.

N'Guessan verður nýr fyrirliði Barcelona en Blaz Janc, Luis Frade og Ludovic Fabregas verða einnig í fyrirliðahópi liðsins.

N'Guessan segist stoltur af því trausti sem honum hefur verið sýnt.

„Ég er stoltur af því að taka þetta skref. Ég er mjög ánægður með að taka þessa ábyrgð að mér og þakklátur bæði þjálfarateyminu og liðsfélögum mínum. Ég hef spilað við hlið nokkurra frábærra fyrirliða í þessum klefa, síðast Dika, og ég mun gera allt sem ég get til að standa undir þessu hlutverki.“

N'Guessan er að hefja sitt ellefta tímabil hjá Barcelona og er samningsbundinn félaginu til ársins 2029.

Janc hefur verið hluti af fyrirliðahópi Barcelona undanfarin fjögur ár og Frade í tvö ár.

Fabregas þekkir hlutverkið einnig vel. Hann var í fyrirliðahópi Barcelona í tvö tímabil, frá 2020 til 2022, áður en hann fór til Veszprém. Hann er nú kominn aftur til félagsins og tekur á ný sæti í hópi fyrirliða.

Mem mun því leika sitt síðasta tímabil með Barcelona án fyrirliðabandsins áður en hann heldur til Þýskalands og gengur í raðir Füchse Berlin næsta sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top