Þessi risafélagaskipti eru þegar staðfest fyrir 2027
Philipp Szyza / AFP

Nýtt tímabil í þýsku Bundesligunni hefst eftir tvær vikur en félögin eru fyrir löngu farin að horfa til sumarsins 2027. Fjöldi stórra félagaskipta hefur þegar verið staðfestur og nokkrar af stærstu stjörnum deildarinnar munu skipta um lið að tímabilinu loknu.

Renars Uscins og Justus Fischer yfirgefa báðir Hannover, Füchse Berlin hefur tryggt sér tvo af öflugustu bakvörðum heims og Flensburg stendur frammi fyrir miklum breytingum.

Hér eru nokkur af stærstu félagaskiptunum sem þegar hafa verið staðfest fyrir sumarið 2027.

Renars Uscins – Hannover til PSG

Það hefur legið fyrir síðan í lok maí að Renars Uscins yfirgefi TSV Hannover-Burgdorf þegar samningur hans rennur út næsta sumar. Í byrjun júlí var síðan staðfest að þýski landsliðsmaðurinn færi til franska stórliðsins Paris Saint-Germain. Hægri skyttan hefur samið við PSG til ársins 2029.

Justus Fischer – Hannover til Kiel

Hannover missir einnig annan þýskan landsliðsmann næsta sumar. Línumaðurinn Justus Fischer gengur þá til liðs við THW Kiel. Fischer hefur, líkt og Uscins, skrifað undir samning til ársins 2029.

Simon Pytlick – Flensburg til Füchse Berlin

Füchse Berlin hefur heldur betur látið til sín taka fyrir sumarið 2027. Danski stórleikmaðurinn Simon Pytlick yfirgefur SG Flensburg-Handewitt og gengur í raðir Berlínarliðsins. Pytlick, sem hefur orðið Ólympíu-, heims- og Evrópumeistari með Danmörku, hefur samið við Füchse til ársins 2030.

Þar mun hann meðal annars ganga til liðs við Dika Mem, sem Füchse hefur einnig tryggt sér fyrir sumarið 2027.

Niclas Kirkelökke – Flensburg til Fredericia

Niclas Kirkelökke kveður einnig Flensburg eftir tímabilið. Danska hægri skyttan snýr aftur til heimalandsins og gengur til liðs við Fredericia HK. Kirkelökke hefur gert samning við félagið til ársins 2030.

Viggó Kristjánsson – Erlangen til Flensburg

Flensburg hefur þegar fundið nýjan mann í hægri skyttustöðuna. Íslenski landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson kemur til félagsins frá HC Erlangen og hefur samið við Flensburg til ársins 2029.

Marcos Fis – Granollers til Barcelona

Barcelona hefur einnig brugðist við yfirvofandi brottför Dika Mem. Spænska stórveldið hefur tryggt sér hinn 19 ára gamla Marcos Fis frá BM Granollers. Fis er talinn eitt mesta efni spænsks handbolta og er ætlað að fylla skarð Mem í hægri skyttustöðunni.

Francisco og Martim Costa – Sporting til Flensburg

Stærsta yfirlýsing Flensburg fyrir sumarið 2027 er þó koma Costa-bræðranna frá Sporting CP. Francisco Costa og Martim Costa ganga báðir til liðs við þýska félagið og hafa gert langtímasamninga til ársins 2032.

Með komu Martim Costa bregst Flensburg meðal annars við brottför Simon Pytlick en Francisco Costa bætist jafnframt í hægri skyttustöðuna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top