Sjö leikmenn frá sjö löndum styrkja lið Rúnars
JAN WOITAS / dpa Picture-Alliance via AFP)

Rúnar Sigtryggsson kemur með töluvert breyttan leikmannahóp til leiks hjá HSG Wetzlar fyrir komandi tímabil í þýsku Bundesligunni. Alls hafa sjö nýir leikmenn gengið til liðs við félagið í sumar og athygli vekur að þeir koma frá sjö mismunandi þjóðum.

Rúnar tók við þjálfun Wetzlar á síðasta tímabili og fær nú tækifæri til að móta hópinn enn frekar eftir sínu höfði. Félagið hefur farið nokkuð mikinn á leikmannamarkaðnum og meðal nýju leikmannanna eru reynslumiklir leikmenn úr Bundesligunni ásamt leikmönnum sem koma erlendis frá.

Nýju leikmenn Wetzlar fyrir tímabilið 2026/27 eru:

  • László Bartucz – Ungverjaland, markvörður frá MT Melsungen
  • Martí Soler – Spánn, vinstri hornamaður frá MT Melsungen
  • Petter Øverby – Noregur, línumaður frá THW Kiel
  • Paul Kompenhans – Þýskaland, leikstjórnandi frá TV Hüttenberg
  • Tomáš Piroch – Tékkland, hægri skytta frá SC DHfK Leipzig
  • Doruk Pehlivan – Tyrkland, skytta frá HC Elbflorenz
  • Nikolaj Læsø – Danmörk, skytta frá Bjerringbro-Silkeborg.

Sérstaklega vekja komur Øverby og Læsø athygli. Øverby kemur með mikla reynslu úr Bundesligunni eftir veru sína hjá THW Kiel á meðan Læsø hefur verið öflugur í danska handboltanum undanfarin ár.

Það er því ljóst að Rúnar stendur frammi fyrir töluverðu verkefni við að púsla saman nýju liði. Sjö nýir leikmenn þýða að stór hluti hópsins þarf að aðlagast nýjum samherjum og áherslum þjálfarans á skömmum tíma.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top