Garðar Ingi Sindrason, leikmaður VfL Gummersbach, er á meðal fjögurra ungra leikmanna sem rthandball telur sérstaklega vert að fylgjast með í þýsku Bundesligunni á komandi tímabili. Allir leikmennirnir á listanum eru fæddir árið 2007 eða síðar. Garðar Ingi er fæddur árið 2007 og gekk til liðs við VfL Gummersbach frá FH í sumar og leikur í skyttustöðu en getur einnig leyst miðjuna. Gummersbach hefur gert miklar breytingar á leikmannahópnum fyrir veturinn og Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari liðsins, hefur þegar lagt áherslu á að sýna þurfi þolinmæði gagnvart ungum leikmönnum á borð við Garðar Inga. Íslendingurinn er þó greinilega einn þeirra ungu leikmanna sem miklar væntingar eru gerðar til og rthandball hefur nú sett hann á lista yfir fjóra leikmenn, fædda 2007 eða síðar, sem vert verður að fylgjast sérstaklega með í Bundesligunni í vetur. Rasmus Ankermann hjá THW Kiel er einnig á listanum. Hann er líkt og Garðar Ingi fæddur árið 2007 og leikur í fyrir utan. Þýsku meistararnir í SC Magdeburg eiga síðan tvo fulltrúa á listanum og eru þeir báðir fæddir árið 2008. Melte Elze er 18 ára línumaður hjá Magdeburg en Tim Thielecke, einnig 18 ára, leikur í leikur fyrir utan. Það verður því áhugavert að fylgjast með hvort einhver þessara fjögurra fái tækifæri til að stíga fram og láta að sér kveða í sterkustu handboltadeild heims á komandi vetri.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.