Philipp J. Müller, stærsti fjárhagslegi bakhjarl HC Hamburg undanfarin tvö ár, segir að félagið geti ekki treyst á að hann dæli milljónum evra inn í reksturinn ár eftir ár. Hann vill að félagið standi í auknum mæli undir eigin rekstri. Müller kom að HC Hamburg fyrir um tveimur og hálfu ári og hefur síðan orðið afar mikilvægur fyrir fjárhag Bundesligufélagsins. Hann viðurkennir þó að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því í upphafi hversu stórt hlutverk hans yrði. „Þegar ég kom inn í handboltann fyrir um tveimur og hálfu ári áttaði ég mig ekki á því að ég yrði strax settur í þetta hlutverk sem verndari félagsins. Það má segja að það hafi verið barnalegt af mér, en ég vil ekki vera settur í þann kassa og á ekki heima þar,“ sagði Müller við Hamburger Abendblatt. Hann segir fjárframlög sín vissulega hafa hjálpað félaginu við að leiðrétta mistök fortíðarinnar en verkefnið hafi reynst umfangsmeira en hann bjóst við. Müller segir að frá fyrsta samtali sínu við félagið í nóvember 2023 hafi ýmislegt komið upp á yfirborðið sem hafi ekki verið í lagi og sum vandamálin hafi ekki orðið ljós fyrr en með tímanum. Müller vill þó gera skýran greinarmun á sinni aðkomu og hlutverki Andreas Rudolph, sem var um árabil stór fjárhagslegur bakhjarl gamla HSV Handball. Framtíðarsýn Müllers er að HC Hamburg verði sjálfbærara og geti aflað þess fjármagns sem þarf til rekstursins án þess að treysta stöðugt á fjárframlög hans. „Ég ætla ekki að dæla inn milljónum á hverju ári. Ég er alls ekki þessi „sugar daddy“ sem leggur fram tvær til þrjár milljónir evra á hverju ári svo að handboltinn geti lifað áfram. Alls ekki,“ sagði Müller. Müller er stofnandi og eigandi PJM Investment Academy og hefur setið í eftirlitsstjórn HC Hamburg frá lokum maí 2024. Hann á 24,9 prósenta hlut í rekstrarfélagi Bundesliguliðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.