Guðjón Valur setur Kiesler í hóp þeirra bestu í heimi
Sina Schuldt / dpa Picture-Alliance via AFP)

Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari VfL Gummersbach, sparar ekki stóru orðin þegar kemur að varnarmanninum Tom Kiesler. Íslenski þjálfarinn telur hinn 25 ára gamla Þjóðverja vera einn af þremur bestu varnarmönnum heims.

Kiesler er einn af þeim leikmönnum sem hafa verið lengst hjá Gummersbach og var kominn í aðallið félagsins áður en Guðjón Valur tók við þjálfun þess. Aðeins þrír leikmenn í núverandi leikmannahópi léku í efstu deild fyrir komu Guðjóns.

Kiesler hefur á síðustu árum orðið lykilmaður í varnarleik Gummersbach og einnig unnið sér sæti í þýska landsliðinu.

„Ég spila klárlega meira í vörn en sókn. Fyrir mér er það að vinna einvígi eða verja skot eins og að skora mark,“ sagði Kiesler í Dyn-þáttunum Grip of Glory.

Guðjón Valur er sérstaklega hrifinn af líkamlegum eiginleikum Þjóðverjans.

„Fyrst og fremst er hann ótrúlega sterkur líkamlega. Hann er með langa handleggi og er virkilega sprengikraftsmikill – ótrúlega sprengikraftsmikill, að mínu mati er hann einn af þremur bestu varnarmönnum heims,sagði Guðjón.

Guðjón Valur ætti að þekkja góða varnarmenn eftir langan feril á meðal þeirra bestu. Hann lék meðal annars með Oliver Roggisch hjá TUSEM Essen og Rhein-Neckar Löwen, Sverre Jakobsson hjá Gummersbach, Lars Jörgensen í Kaupmannahöfn og Viran Morros hjá Barcelona og PSG.

Guðjón gengur raunar enn lengra þegar hann lýsir mikilvægi Kiesler fyrir lið sitt.

„Ég get aðeins mælt með því við alla þjálfara að vera með Tom Kiesler í liðinu sínu. Það er virkilega gagnlegt og gerir margt auðveldara.“

Guðjón er ekki sá eini sem hefur hrósað Kiesler. Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, hefur einnig bent á fjölhæfni hans í varnarleiknum.

„Kiesler er mjög fjölhæfur og sveigjanlegur. Hann getur spilað nánast allar stöður í miðri vörninni, hvort sem vörnin er aftarlega eða framarlega,“ sagði Alfreð fyrir landsleiki Þýskalands gegn Íslandi árið 2025.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top