Nýliðarnir í Grill66-deild karla hafa samið við fjóra nýja leikmenn fyrir komandi tímabil en liðið leikur opnunarleik deildarinnar gegn Gróttu, föstudaginn 4.september. Marek, Petr og Dawid hafa allir skrifað undir samning við félagið til tveggja ára og þá hefur markvörðurinn, Sigurjón Ágúst Ingibjargarson gert eins árs samning. ,,Spennandi tímar framundan hjá Víði," segir í tilkynningunni frá Víði. Í tilkynningunni er tekið fram að Sigurjón hafi síðast spilað með Fjölni og er upphaflega uppalinn hjá Val. Frekari upplýsingar um hina þrjá leikmennina er ekki að finna í tilkynningunni frá félaginu. Víðir leikur í Grill66-deildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins eftir góðan árangur í 2.deildinni á síðustu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.