Arnór spáir því að Álaborg tapi ekki stigi í vetur
Tvis Holstebro

Arnór Atlason, þjálfari TTH Holstebro, hefur mikla trú á sínum fyrrverandi vinnuveitendum hjá Álaborg. Eftir 31–29 tap TTH Holstebro gegn dönsku meisturunum í gær telur Arnór að Álaborg sé einfaldlega svo sterkt að liðið muni ekki tapa stigi í dönsku deildinni í vetur.

Álaborg tapar ekki einu einasta stigi í ár. Svo sterkir eru þeir,“ sagði Arnór eftir leikinn. Hann þekkir vel til hjá Álaborg eftir að hafa starfað sem aðstoðarþjálfari hjá félaginu í sjö ár.

Álaborg hafði yfirhöndina í leiknum frá upphafi og leiddi 15–14 í hálfleik. Heimamenn náðu síðan mest fimm marka forskoti í síðari hálfleik en TTH neitaði að gefast upp og minnkaði muninn niður í tvö mörk undir lokin. Álaborg hélt þó út og tryggði sér 31–29 sigur og þar með sinn annan sigur í tveimur fyrstu leikjum tímabilsins.

Holstebro hóf tímabilið á sigri gegn Bjerringbro-Silkeborg í fyrstu umferð. Jóhannes Berg Andrason skoraði tvö mörk fyrir TTH. Benedikt Gunnar Óskarsson sem gekk í raðir félagsins í sumar er enn fjarverandi vegna meiðsla.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top