Árni Bragi framlengir við Aftureldingu til 2028
Raggi Óla

Árni Bragi Eyjólfsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Aftureldingu og er því samningsbundinn Mosfellingum til ársins 2028.

Afturelding hefur ekki tilkynnt um nýjan samning við Árna Braga en samkvæmt samningaskrá Handknattleikssambands Íslands hefur verið gengið frá tveggja ára samningi við leikmanninn.

Árni Bragi hefur verið í stóru hlutverki hjá Aftureldingu undanfarin ár og verður áfram í herbúðum félagsins næstu tvö tímabil.

Nýi samningurinn er kominn í gildi og verður Árni Bragi því löglegur með Aftureldingu þegar liðið hefur leik í Olís-deild karla í kvöld. Afturelding tekur þá á móti Víkingi í 1. umferð Olís-deildarinnar að Varmá en flautað verður til leiks klukkan 19:30.

Óvissa ríkti lengi vel í sumar um það hvort Árni Bragi myndi leika með Aftureldingu í vetur en Handkastið greindi frá því í ágúst að Árni Bragi hafi leikið með liðinu í æfingaleik í aðdraganda mótsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top