Seinni hálfleikurinn í Mosó kláraður á morgun
Egill Bjarni Friðjónsson

Seinni hálfleikur Aftureldingar og Víkings í fyrstu umferð Olís-deildar karla verður leikinn á morgun, sunnudag, klukkan 13:00 í Myntkauphöllinni að Varmá.

Leik liðanna var frestað í gærkvöldi eftir að rafmagn fór af í Mosfellsbæ þegar fyrri hálfleik var nýlokið. Ekki tókst að koma rafmagni aftur á innan ásættanlegs tíma og því varð ekki hjá því komist að fresta síðari hálfleiknum.

Afturelding hafði betur í fyrri hálfleik og verður því með fimm marka forskot, 17-12, þegar leikurinn heldur áfram á morgun. Mosfellingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust meðal annars í 8-2 áður en Víkingar minnkuðu muninn fyrir hlé.

Liðin þurfa því aðeins að leika 30 mínútur á morgun til að útkljá viðureignina og ljúka fyrstu umferð sinni í Olís-deildinni. Flautað verður til leiks klukkan 13:00.

1.umferðin í Olís-deild karla lýkur á morgun þegar Haukar og ÍBV mætast á Ásvöllum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top