Arnar Snær Magnússon og Kjartan Þór Júlíusson voru hvorugir í leikmannahópi Fram þegar liðið hóf tímabilið á 38-34 sigri gegn Þór í 1. umferð Olís-deildar karla um helgina. Hægri hornamaðurinn, Arnar Snær Magnússon tognaði aftan í læri á æfingu á föstudaginn og útlit er fyrir að hann verði frá keppni næstu vikurnar. „Arnar Snær tognaði aftan í læri á föstudaginn. Væntanlega frá í ca. sex vikur. Kjartan er með eitthvað í mjöðm, byrjar að æfa í vikunni, vonandi,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, í samtali við Handkastið. Kjartan Þór, sem er hægri skytta, gæti því verið styttra frá því að snúa aftur á völlinn en óvissa ríkir enn um stöðu hans. Fram byrjaði tímabilið vel þrátt fyrir fjarveru þeirra. Þórsarar skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins í Lambhagahöllinni en Fram tók fljótlega yfir og leiddi 17-14 í hálfleik. Heimamenn héldu forskotinu eftir hlé og fögnuðu að lokum fjögurra marka sigri, 38-34. Haukur Ingi Hauksson var markahæstur Fram með sjö mörk en Ívar Logi Styrmisson og Max Emil Stenlund skoruðu sex mörk hvor. Næsta verkefni Fram er Reykjavíkurslagur gegn Íslandsmeisturum Vals í N1-höllinni á föstudagskvöld. Flautað verður til leiks klukkan 19:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.