Vestmannaeyingarnir voru hrikalega lélegir
Egill Bjarni Friðjónsson

Karlalið ÍBV fékk slæma útreið gegn Haukum í lokaleik 1. umferðar Olís-deildar karla á Ásvöllum í gær. Haukar unnu öruggan níu marka sigur, 38-29, eftir að hafa leitt 18-11 í hálfleik.

Farið var yfir fyrstu umferðir Olís-deilda karla og kvenna í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Sérfræðingurinn, Stymmi klippari og Kiddi Bomba settust í Rapyd-stúdíóið og gerðu upp leikina.

Eyjamenn voru harðlega gagnrýndir fyrir frammistöðuna gegn Haukum.

„Vestmannaeyingarnir voru hrikalega lélegir í þessum leik og maður beið með smá spenningi eftir þessum leik. En maður var farinn að gera eitthvað annað og farinn að horfa á leikinn með öðru auganu mjög snemma,“ sagði Kristinn Björgúlfsson, Kiddi Bomba.

Haukar tóku völdin snemma eftir jafnar upphafsmínútur og voru komnir sjö mörkum yfir í hálfleik, 18-11. ÍBV náði mest að minnka muninn í fimm mörk eftir hlé en Haukar svöruðu því og náðu mest tíu marka forskoti áður en lokatölur urðu 38-29.

Stymmi klippari sagðist hafa búist við öruggum sigri Hauka og hafði áhyggjur af stöðu Eyjamanna.

„Ég bjóst alltaf við frekar öruggum og þægilegum Haukasigri. Það er að raungerast það sem við töluðum um fyrir mót. Það að þeir komist í topp átta er bara fínn árangur fyrir þá, nema þeir bæti við sig einhverjum leikmanni sem ég reikna ekki með. Þú ert ekkert að sækja einhverja leikmenn á þessum tímapunkti.“

„Þetta verður mjög erfitt gegn betri liðum deildarinnar ef Petar á ekki betri leik í markinu og þeir ná ekki fleiri en átta fríköstum,“ sagði Stymmi og bætti við:

„Ég hef líka áhyggjur af því að ég held að leikmenn eins og Daníel Þór, Kristófer Ísak og Dagur Arnarsson séu ekkert með stærstu og sterkustu lungun. Þeir eru ekki að fara að klára maraþon og þetta eru mennirnir sem eru að bera upp varnar- og sóknarleik liðsins.“

Petar Jokanovic varði fimm skot í marki ÍBV í leiknum en Daníel Þór Ingason var markahæstur Eyjamanna með sex mörk. Kristófer Ísak Bárðarson og Sigtryggur Daði Rúnarsson skoruðu fimm mörk hvor. Freyr Aronsson fór fyrir Haukum og skoraði ellefu mörk.

Eyjamenn fá fljótlega tækifæri til að svara fyrir tapið. Selfoss kemur í heimsókn til Vestmannaeyja í 2. umferðinni og töldu þáttastjórnendur þann leik geta gefið mun betri mynd af stöðu ÍBV.

„Þeir fá Selfoss í heimsókn í næstu umferð, eigum við ekki að segja að það sé alvöru próf fyrir þá?“ sagði Sérfræðingurinn. Frekari umræða um leik Hauka og ÍBV er hægt að hlusta á í nýjasta þætti Handkastsins.

Leikur ÍBV og Selfoss fer fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja fimmtudaginn 10. september og hefst klukkan 18:00.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top