Lagði skóna á hilluna og fer beint í þjálfun
Þór

Halldór Kristinn Harðarson hefur gengið til liðs við þjálfarateymi meistaraflokks Þórs á Akureyri. Hann verður aðstoðarþjálfari liðsins auk þess að sinna starfi styrktarþjálfara.

Halldór Kristinn, eða Dóri eins og hann er jafnan kallaður, lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en er því ekki lengi að snúa aftur að handboltanum í nýju hlutverki.

Langar ekki að hætta en þarft skref fyrir félagið

Hann skrifaði á dögunum undir samning við Þór og hefur þegar hafið störf með þjálfarateyminu.

„Við erum gríðarlega ánægðir að fá Dóra inn í teymið þar sem hann er ómissandi í starfi deildarinnar,“ segir í tilkynningu Þórs.

Þór hóf keppni í Olís-deild karla með tapi gegn Fram í 1.umferðinni en liðið fær HK í heimsókn í næstu umferð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top